Sunday, August 31, 2008
allt of fljótt? Síðasti dagur ágústmánaðar og mágurinn á afmæli. Einnig síðasti dagurinn á Hótel Héraði amk í þessu starfi. Reyndar er nóttin ekki úti enn því ég mun standa síðustu næturvaktina, hef reyndar fullan hug á að dotta svo ég verði viðræðuhæf í skólanum á morgun. Á morgun standa fyrir dyrum flutningar og þrif svo við Bryndís getum farið að hreiðra um okkur í íbúðinni. September verður bissy að öllum líkindum. Ég þarf að koma mér inn í nýja starfið, er enn hálf utanveltu í því enda ekki mikill tími til að hugsa um það hingað til. Svo eru hátíðarhöld í tilefni stórafmæla, ég næ tug en afi hefði orðið 100 ára hefði hann lifað og á að reisa honum minnisvarða í sveitinni. En við erum ekki þau einu því Steinar og Tíbrá deila þessum mánuði með okkur svo fjölskyldan verður á sannkölluðu kökufylleríi. Suðurferð, berjamór og allt sem fylgir haustinu. Svo vonar maður að haustið verði gott. Ég persónulega elska þennan tíma, kerti og kósíheit og fallegir litir í náttúrunni.
Posted at 8/31/2008 by Stina78
Permalink
Wednesday, August 20, 2008
Nú er fjör, daman byrjuð í vinnu 2 og sér ekki út úr augum fyrir verkefnum. Það er meiri vinna en ég hugsaði mér að byrja kennslu, sérstaklega fyrir svona nýja og óreynda manneskju. Þetta verður á efa skemmtilegt en fyrst á ástandið eftir að versna áður en það fer að batna. Starfsfólkið mitt á Hótel Héraði tínist eitt af öðru í burtu til að fara í skóla svo við sem eftir erum þurfum að hlaupa aðeins hraðar og svitnum í takt við það. Að byrja í nýrri vinnu á sama tíma er ekki það sem ég hefði helst kosið mér en þetta skal og mun ganga upp. Helstu fréttirnar af einbúanum eru þær að hún er á leið í "sambúð" og þá með annarri sama kyns. Ég geri óspart grín af sjálfri mér og tel mig hiklaust næstu Svövu frænku. Reyndar er ástæðunnar að leita á nýjum starfsstað en við Bryndís komum til með að búa saman til að allir starfsmenn skólans fái nú þak yfir höfðið og erum bara kátar með það. Meðfram þessum vinnupælingum reyni ég að skvísa inn hugmyndum um hátíðarhöld þegar maður kemst á næsta tug en tel mér trú um að það séu enn nógu margir dagar til stefnu... kannski ég geri bara eins og kóngafólkið og hafi margar veislur og gleðjist óspart fram eftir vetri.
Posted at 8/20/2008 by Stina78
Permalink
Sunday, August 03, 2008
Ég er komin með fastan samastað. Það er ekki lítið ljúft eftir að hafa búið í töskum meira og minna í allt sumar. Íbúðin er heldur stærri en sú sem ég eyddi sl. 3 árum í. Hef amk svefnherbergi og fyrir það ber að þakka. Nú þarf ég bara að huga að því að koma "búslóðinni" austur á land, það er minna fjör. Svo ef ég gerist stórtæk þá fjárfesti ég í svefnsófa ef gesti ber að garði. Á reyndar von á þeim fyrstu innan tíðar en þeim verður í besta falli boðið upp á vindsæng. Verslunarmannahelgin líður eins og hver önnur helgi. Hjartarstaða(stór)fjölskyldan ætlar þó að grilla saman þann 4 ágúst á afmælisdegi ömmu heitinnar. Það verður hápunktur helgarinnar.
Posted at 8/3/2008 by Stina78
Permalink
Tuesday, July 22, 2008
Þegar ég kom til Egilsstaða í vor var ég harð ákveðin í að ílengjast ekki á staðnum. En vegir lífsins leiða mann oft á aðra braut en ætlað er í upphafi. Ég hef ráðið mig við Menntaskólann á Egilsstöðum þar sem ég verð í 50% starfi félagsráðgjafa og 50% kennslu. Hverjum hefði dottið það í hug... ekki mér. Það er ekki laust við smá kvíða yfir þessari ákvörðun en nú er amk valkvíðinn liðinn hjá í bili og ég þarf ekki að brjóta heilann um framtíðina fyrr en næsta vor. Talandi um frestunaráráttu hehe. Þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar sem ég hef hitt hér fyrir utan iðnaðarmenn og hótelgesti. Reyndar slæðast inn leiðsögumenn og bílstjórar sem voru hjá mér á Laugarvatni í fyrra. Það er alltaf jafn gaman að sjá kunnugleg andlit eins og Hörpu og fjölskyldu, Önnu Sigrúnu og fleiri. Lífið er gott á Héraði flesta daga og Hótelið stendur enn á grunninum. Vona að það haldist áfram. Nú er bara að finna sér áhugamál fyrir veturinn svo geðheilsan verði réttu megin við línuna. Framundan er svo gleðihelgi á Borgarfirði, nú er ég ákveðin í að upplifa Bræðslutónleika í fyrsta skipti. Maður lætur Damian Rice ekki fram hjá sér fara fyrst maður er á staðnum. Sjáumst á Borgarfirði!
Posted at 7/22/2008 by Stina78
Permalink
Friday, July 04, 2008
Meyja: Vertu viðbúinn löngum degi - allt fram á nótt - sem verður ekkert nema skemmtilegheitin. Þetta svall er frábær leið til að halda upp á mjög afkastamikla viku.
Ég brosti með sjálfri mér þegar ég las þetta í morgun, ætlaði að hafa það huggó seinni partinn. Í kvöld eftir 15 tíma vakt brosi ég enn meira. Það er þá kannski eitthvað til í stjörnuspá moggans. Þess má geta að ég brosti ekki alveg í allan dag...
Posted at 7/4/2008 by Stina78
Permalink
Thursday, July 03, 2008
Júlí er runninn
upp bjartur og fagur (ég hef amk fulla trú á að nú fari sólin að láta sjá sig).
Ég er nú orðin félagsráðgjafi og átti góðan útskriftardag í Reykjavíkinni. Annars
finnur maður mikið fyrir stressinu við svona bæjarferðir þegar maður á ekki
heima þar lengur. Á hótelinu gengur allt sinn vanagang og sumarstarfsmennirnir
eru að detta inn úr dyrunum. Bylgjan var hjá okkur um daginn með beina útsendingu
og við eigum bráðum von á tónlistarkonu í kjallarann. Frændur okkar Færeyjingar
eiga stundum erfitt með aðflug og höfum við nú í tvígang fyllt hótelið hjá
okkur seint um kvöld þar sem vélar þurftu að snúa við frá eyjunni. Við Signý á Eddunni reynum að leysa þetta í sameiningu. Þá er mikið
umstang í stuttan tíma og þó maður sé svolítið framlár að taka á móti gestum
upp úr miðnætti þá er eitthvað við þetta...
Næsta mál á
dagskrá er að ákveða næsta vetur. Þá stangast á suðrið og austrið og ég stend
uppi með valkvíða og söknuð. Það kemur allt í ljós á næstu dögum ef allt gengur
að óskum og ég get tekið ákvörðun.
Félagslífið er álíka
öflugt hjá mér og síðasta sumar þó ég hafi líklega farið oftar á kaffihúsið á
Laugarvatni heldur en hér á Egs. Þó ég sakni margs frá þeim stað og þá aðallega
fólksins sem var þar með mér þá er hvergi fallegra en á Héraði. Líklega hef ég
haft gott af dvölinni syðra því nú kann ég betur að meta Héraðið þó það blási
stundum á okkur hér. Svo er sveitin ekki langt undan, hvað gæti maður viljað hafa það betra!
Posted at 7/3/2008 by Stina78
Permalink
Tuesday, June 10, 2008
Nú er ég að komast inn í ferlið á hótelinu hægt og hægt. Ekki allt fullkomið, enn ég vona að þetta verði gott sumar hjá okkur. Ég hef ekki hitt mikið af fólki fyrir utan túrista og starfsmenn og er satt best að segja yfirleitt í vinnunni enn sem komið er. Það stendur vonandi til bóta. Núna sakna ég sólarinnar og vona að "hitabylgjan" um daginn hafi ekki verið allt og sumt sem við fáum að sjá af þeirri gulu í sumar.
Næstu helgi ætla ég að bregða mér bæjarleið til Reykjavíkur og fagna útskrift með bekkjarsystkinum mínum, foreldrum og stóru sys. Hlakka mikið til að gera mér dagamun og komast örlítið í burtu. Ef einhver ykkar vitið ekkert hvað þið eigið af ykkur að gera á laugardagskvöldið væri gaman að sjá framan í ykkur á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur. Ég þarf að hugsa upp eitthvað patent í vikunni.
Posted at 6/10/2008 by Stina78
Permalink
Thursday, May 29, 2008
Héraðið tók á móti mér með sól og Bahama veðri. Ég naut þess að vísu mest í gegnum gluggann og svitnaði í nælonsokkabuxunum. Minnti á sumarið í fyrra á Laugarvatni og ég spurði mig rétt sem snöggvast afhverju ég hefði valið þetta jobb. En ég veit það svosem vel... I love it þar til fer að síga á sumarið amk. Mér líst vel á hótelið enn sem komið er og hlakka til þegar ég verð farin að komast betur inn í hlutina. Bókhaldið er reyndar algjör martröð og þá gilda yfirstrikunarpennar í öllum regnbogans litum. Ég fæ vonandi íbúðina um helgina og þá verður þetta svolítið meira "heima". Líður enn eins og ég sé að fara eftir nokkra daga enda búin að vera á þeytingi milli egs/rvk núna síðustu daga, ýmist keyrandi eða fljúgandi.
Egilsstaðir hafa mikið breyst og ég þekki varla nokkurn mann, á reyndar eftir að sannreyna það með ferð í Bónus, KHB og Söluskálann. En þangað til næst... Ciao
Posted at 5/29/2008 by Stina78
Permalink
Tuesday, May 13, 2008
Meyja:
Það er alltaf auðveldara að sjá hvað fór úrskeiðis eftir á. Ef þú
sundurgreinir fyrra samband er auðveldara að hafa núverandi aðstæður í
lagi.Ég er svo mikill sökker fyrir stjörnuspám og þessi hitti svo algjörlega í mark að ég varð að láta hana fylgja. Hún er gefin fyrir drama þessi dama ;) Annars er allt að skýrast með íbúðamálin á Egilsstöðum. Flyt aftur í bláublokkina þar sem ég bjó hér í eina tíð. Þarf bara að kíkja og sjá hvað ég þarf að taka með mér. Nenni ómögulega að flytja mikið af drasli austur fyrir 3 mánuði (að því gefnu að ég finni ekki eiginmannsefnið og draumadjobbið). Búin að leigja mér geymslu fyrir dótið í Rvk og byrjuð að pakka. Systir minni þykir þetta ganga heldur hægt m.t.t. stærðar íbúðarinnar sem ég er í núna, en þetta er bara svo rosalega leiðinlegt. Er svo að vinna í því að kveðja liðið, Bergrún fór í dag til Eyja en við nýttum kaffihúsin ágætlega síðustu vikuna. Næsta hálfan mánuðinn verður mikið flandur austur og suður auk tónleika og söngprófs. Nóg að gera.
Lærdómur ársins er þessi: Ég veit ekkert hvað ég vil en ég er amk pottþétt á því hvað ég vil ekki... það gæti verið verra!
Posted at 5/13/2008 by Stina78
Permalink
Tuesday, May 06, 2008
Mikið sem hádegisfréttir geta verið hressandi. Síminn rauðglóandi og 20 dagar til stefnu. Ætli ég fái prósentur...
Posted at 5/6/2008 by Stina78
Permalink